Neyðarsamstarf raforkukerfisins
Neyðarsamstarf raforkukerfisins er samvinnu­vettvangur vinnslufyrirtækja, flutningsfyrirtækis, dreifiveitna, stórnotenda og opinberra aðila á Íslandi vegna vár sem steðjar að vinnslu, flutningi eða dreifingu raforku og / eða stórnotendum.

Markmið þátttakenda er að veita aðstoð og samræma aðgerðir í vá.

Á Norðurlöndunum fer einnig fram neyðarsamstarf um rekstraröryggi norrænu raforkuflutnings - kerfanna sem nefnist NordBER. Skýrslu um starfsemi NordBER er að finna hér.
Innskráning
Notendanafn: Lykilorð:
   
7.11.2011 

Í kjölfar umræðu á haustfundi NSR þann 25.okt.sl. fékk neyðarstjórn Orkuveitu Reykjavíkur Lúðvík B. Ögmundsson öryggisstjóra Landsnets og formann framkvæmdanefndar NSR til þess að fara yfir efnið á fundi neyðarstjórnar þann 02.nóv.sl.

27.10.2011 
Þann 25.október var haldinn haustfundur NSR. Fundurinn var vel sóttur og var þar fjallað um fjölmörg áhugaverð atriði fyrir þátttakendur samstarfsins.
24.10.2011 

Haustfundur NSR verður haldinn þriðjudaginn 25.okt.nk. kl. 14-16 í höfðustöðvum Landsnets að Gylfaflöt 9.

Fjallað verður um ýmis málefni sem varða samstarfsvettvang NSR svo sem æfingar, öryggisfjarskipti, áhrif gosösku og sólstorma á raforkukerfið, norræna samvinnu og fleira.